Færsluflokkur: Bloggar
24.11.2010 | 18:58
Spara spara spara OJBARA!
Ætla að prófa að halda blogg eina ferðina enn. Ég hélt bloggi á frá því ég var 17/18 ára þagað til ég var 22 og hætti svo og bloggaði eina færslu hér og þar.
Prófum þetta allavegna
Ég fór í tökur í dag fyrir sjónvarpsþátt sem hefur göngu sína um páskana/vor. Það var mjög gaman og spennandi verkefni og verð ég áberandi þáttur í einu atriðinu. Maður ætti kannski bara að leggja leiklistina fyrir sig ?
Eins og fram hefur komið þá er ég þáttastjórnandi í þáttum fyrir Ungfrú Ísland. Ég er þegar búin að taka upp fyrsta þáttinn með hinni fallegu Fanney og næsti þáttur verður tekinn upp um helgina í áheyrnarprufum. Ég hlakka mjög til að sjá útkomuna á þessu öllu saman og vona að þetta opni fleiri dyr fyrir mig í sjónvarpi og show-i mig á því sviði.
En úr einu í annað...Þá finnst mér hræðilegt að hvorki Tryggingastofnun né Akureyrarbær vilji styrkja greyið 15 ára strákinn á Akureyri sem er orðinn fatlaður, blindur, heyrnalaus, passar ekki lengur í hjólastólinn sinn og kemst varla almennilega um húsið sitt því það er ekki gert fyrir fólk í hjólastól.
Eða þá greyið dýrin út á landi sem bændur eru að gelda án leyfis og án dýranlækna og deyfilyfja. OJ! Ég gat ekki hætt að hugsa um þetta í gær! Það var sýnt litla sæta grísi og svo var sagt að það væri stungið í punginn á þeim með hníf og svo pungurinn RIFINN af!!!
!!Jahérna hér!!
Naumast að fólk er að spara í dag, hvort sem það er í garð fatlaðra barna eða dýra til utaneldis!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2009 | 23:03
Barcelona and dreaming of places that I love ;*
Ég hef verið svolítið mikið á flakki seinustu 2-3 árin og fór m.a. til Barcelona sumarið sem ég bjó í Evrópu. Stoppaði alltof stutt, eða bara í rúma viku og fannst ég ekki geta notið borgarinnar til fullnustu og fengið að sjá allt sem ég vildi sjá.
Þessi borg heillaði mig mjög mikið og mig langar einhverntima að búa þar í x tima og ætla allavegana pottþétt að heimsækja hana í bráð.
Þetta er einstaklega falleg borg, með alveg nóg uppá að bjóða og svo er hægt að ganga um alla borgina án þess að taka lest eða taxa. ...sem ég var að fýla mjög vel :)
Fer svo auðvitað í trimmið til að halda mér í formi sem virkar svona svakalega vel ;)
Foreldrar hans eru alveg með eindæmum yndislegir og hver getur óskað sér betri kærasta en hann Gumma hotstuff
Og markmið þáttanna er að finna bestu vinkonu Paris Hilton's .
Ég alveg hló innra með mér og fékk kjánahroll þegar ég sá auglýsinguna en af því ég þekki Paris smá persónulega frá dvöl minni í LA þá veit ég að hún er bara að gera þetta í gríni og til að auka vinsældir sínar.
Ég ákvað að kíkja á fyrsta þáttin, bara svona for fun, og að hugsa sér að fara í svona þátt til að verða "besta vinkona" einhverjar frægrar persónu??!!??
Fólkið sem kom var hverju furðulegra : hommi, kínverskur kynskiptingur, stelpa sem leit duldið út eins og Anna Nichole Smith, fyllibitta, forboðin djammari sem verður kolkreisí, hrein mey sem fer í kirkju 3svar í viku, rokkarinn, bikinígellan og skrítni stalkerinn..
Þetta var alltof fyndið til að missa af. Paris setti fyrir vinkonur sínar alls kyns þrautir og "challenges" til að finna út hver myndi standa upp sem besta vinkonan. Og um leið sýndi hún áhorfendum hversu glamourus hennar líf er og öfundsvert.
Ég endaði með því að horfa til enda því ég alveg VARÐ að sjá hver myndi enda upp sem sigurvegari og hvort hún myndi í raun verða vinkona hennar, haha
*það sem fólk gerir fyrir 5mín af frægð*
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2009 | 14:13
I'm so glad I have so much to be thankful and be happy for ;*
*og við erum gráti nær yfir OKKAR ástandi*
Mér finnst þetta hræðilegt!
Það finnst mér allavegana...
--------------------------------------------------
Ég vaknaði þó frekar illa eftir svæfinguna og var næstum dáin....
Lungun mín voru búin að vera mjög veik fyrir aðgerðina og læknarnir ekki vissir hvort þeir ætluðu að gera aðgerðina eða fresta henni þangað til lungun styrktust aðeins.
...þeir ákváðu þó að fresta henni ekkert.
Þegar ég var að vakna af svæfingunni þá bara gat ég ekki andað!
...ég reyndi og reyndi, en gat það ekki!
Ég hef aldrei upplifað annað eins!!
Og þá byrjaði ég að anda jafnt og þétt. En lungun voru MJÖG aum alveg marga daga á eftir og vont að anda. Ekki einu sinni morfínið dugði á verkinn.
Ég hef ekkert gert annað en að sitja, horfa á DVD, verið í tölvunni og horft á sjónvarpið!
*er það nú líf*
*tíhí*
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2009 | 19:18
batnandi börnum er best að lifa...
Ekki mikið hægt að gera nema horfa útí loftið og bora í nefið..
...jú, líka hlusta á konuna í næsta rúmi kvarta og vorkenna sér...
...þoli ekki svoleiðis...
...allavega fer ég út, allt er betra en inni, heh
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 01:37
Vika í stóra aðgerð! ....nenniggi....
Ég man þegar ég sat í sófanum heima hjá systur minni seinustu jól og taldi niður dagana þangað til ég færi út í skólann í LA.
....Svona er þetta stundum...
Ætli allir skólar á landinu verði hvort eð er ekki yfirfullir af fólki sem hefur verið sagt upp í sumar/haust.
*hræðilegt ástand*
Það getur ekki verið skemmtilegt líf..........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.12.2008 | 14:23
Af hverju er ég alltaf veik á jólunum??
Nei nei, ég er bara búin að vera super busy síðan þá og frekar mikið slöpp. Nenniggi slöpp núna!
...ég er ALLTAF veik á jólunum, það bara eiginlega bregst ekki!!
Hvað finnst ykkur ?? Honesty please??
Áður en ég fór í jólagjafakaup þá fór ég í trimmið og eftir kaupin í ljós.
En í ljósum þá leið mér hálfskringilega og fór út úr bekknum og þegar ég var frammi að laga á mér hárið þá leið næstum yfir mig, sá ekki neitt, gat ekki labbað né talað og þegar ég ætlaði að hringja þá sá ég ekki á símann minn
Ég mundi samt nr. hans Gumma og hann talaði mig í gegnum þetta og ég róaðist niður og lagaðist á endanum.
Vá hvað ég hefði ekki verið til í að hrynja meðvitundarlaus niður þarna....engin myndi finna mig
Það er svona að ofreyna sig í veikindum!
Hvað er samt málið með að allir séu svona hriiikalega háðir þessu facebook?
Ég auðvitað kíki af og til inná þetta en er ekki dag og nótt inná til að vita hvað þessi og hinn eru að segja við þennan og hinn og kommenta hjá honum og henni.
Svo er alls konar fólk alltaf að adda manni og ef maður addar því ekki strax þá bara prófar það aftur, heh
Þetta var reyndar lika svona hjá mér á myspace en núna er myspace alveg deadzone. Engin íslendingur er þar allavega lengur.
Og myspace er alveg að taka eftir óvinsældum hjá sér og er farið að breyta stillingunum hjá sér til að vera alveg eins og facebook. Frekar halló!
Ég er annars að fara að hitta Helgu mína og Evu í kvöld. ALLTOF langt síðan við 3 höfum hisst allar saman. Ætlum að snæða e-ð saman og kíkja svo út. Ég stakk uppá Breytingapartýið á Apó því Gunni er búin að vera að segja mér frá þessum breytingum forever og ég er svo forvitin
Svo á Laugadaginn er útskrift bróður míns, í skólanum kl. 11 og svo veisla kl. 17:00. Svaka stolt af brósa sínum
Eftir veisluna þá ætlum við CULT skvísur að hittast heima hjá Sigrúnu...sötra, borða óhollustu og skunda svo í Jólagleðina hans Gummakrútts sem verður á Sólon um kvöldið. Það verður pottþétt algjör geðveiki og fjör
Því mig langar að vera í kjól!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.12.2008 | 18:44
Þreytti gaurinn er voða mikið Duglegi gaurinn!
Já allt bloggerí hefur staðnað hjá mér vegna próflestrar!
Ég er svakalega mikið þreytt þessa dagana...það hefur þó ekki stoppað mig að vera dugleg að lesa og vinna.
Það má ekki henda þessum 4 mánuðum sem maður hefur setið á skólabekk í vaskinn með því að vera Latigaurinn.
Vá hvað allir eru e-ð fullir og leiðinlegir þegar þeir eru fullir. Ég er núna búin að vera að vinna ein seinustu 2 skipti, á Óliver og B5 og það er svo mikið áreiti í gangi. Fólk verður alveg ofurölvað og heldur svo það að það sé rosa fun og flott, heh
Á B5 var einn gaur ALLTAF að koma upp að mér "jááá sææææææælll!!...eigum við að rææææða það e-ð hvað þú ert sæt!!"
Annar ætlaði ekki að fara fyrr en hann fengi nr. mitt og 2 aðrir vildu að ég skutlaði þeim heim! Ég þurfti að hlaupa upp stigan og út svo að þeir tækju ekki eftir að ég væri farin, hehe
Mest pirrandi gaurinn var einhver BLIND fullur, útúr kortinu útlendinur sem lá á balanum mínum, ýtti mér, fiktaði í öllu sem ég var að selja og var á borðinu minu og áreitti fólkið sem ég var að afgreiða (það var samt fyndið)
Siggi yfirmaðurinn minn var svo góður að henda honum út í endan þegar ég gat bara ekki meir!
Fyndast var þegar einhver mamma stelpu sem var að DJAMMA MEÐ HENNI hrundi niður stigan í fyllu sinni og kjóllinn hennar upp um hana og naríurnar buðu góðan dag.
*múhahaha*
Já oftast er ROSA gaman í vinnunni en í gær var frekar hmmm....hjá mikið áreiti.
Og gamalt fólk að ofnota frasa úr dagvaktinni! ...það er ekki að gera sig! haha
Ég klára prófin mín á föstudagin og ég hlakka mikið til þess dags. Að sofa út og liggja heima án þess að opna bók....allavega næsta mánuðinn, heh
*aðeins að slappa af*
OOOOOOG auðvitað verða smá fulligaurinn og hressigaurinn í bland viðþann duglega auðvitað - vinna vinna -
Ég er komin með nett ógeð á þessum Þreytta endalaust!
Jújæja. Ég ætla að enda þetta á einu flottu ljóði eftir Sigurð Sigurðarson frá Arnarhóli "Í dag".
Svona víst ég er að fara í Íslenskupróf á þriðjudag
*wish me luck*
Í dag er jeg glaður - í dag vil jeg syngja
og dansa til morguns við hverja sem er.
Við flakkarann allt eins og kóng vil jeg klingja -
jeg kæri mig ekki um nafnið á þjer.
Þú ert vinur minn, víst
eins og veröldin snýst -
á víxla ég skrifa nú eins og þjer líst!
Í dag er ég reiður - í dag vil jeg brjóta,
drepa og brenna hjer allt nið'r í svörð;
hengja og skóta' alla helvítis þrjóta.
Hræki nú skýin á sökkvandi jörð!
Farðu' í heitasta hel!
Skaki hörmungagjel
hnöttinn af brautinni', og þá er ég vel!
Lag dagsins: "Three Seed" með Silversun Pickups
Bloggar | Breytt 8.12.2008 kl. 02:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.11.2008 | 18:55
Crazy in love
um neitt annað en þig, þegar
Ég heyrði beint frá þér
að skotin þín væru inní mér
föst þar, vona ég, í ósátt að taka þau
því þetta eru gullskot í hjartanu mínu
Verð ég að sitja hér og bíða, eftir þér
Það er ekki eins auðvelt og ég hélt
(og ég hélt)
Ný kominn uppúr og það lekur
af mér en það tekur, svo langann tíma að bíða
ég verð orðinn þurr þegar þú loksins kemur
Fastur, vona ég, í ósátt að fara burt
því þetta eru gullskot í hjartanu mínu
Þetta er semsagt lag á fyrstu plötu þeirra sem ég átti þegar ég var svona 16 ára.
Þá bjó hann rétt hjá mér, eða í hfj og ég óskaði þess heitast að hann myndi tala við mig
Bloggar | Breytt 29.11.2008 kl. 03:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.11.2008 | 17:44
kinky eða hvað??
*ojpara!*
Á myspace-inu minu eru margar svona uppboðs-fatasíður ....og ein þeirra var að pósta nýjum skóm og segja þeir væru geðveikir!
WTF??!!??
*haha*
Vá hvað væri skondið að sjá eina valsandi niður laugarann á þessum kvikindum
Gæti kannski séð fyrir mér einhvern kinky leik í svefnherberginu, hehe en jámm....
...varð bara að deila þessu með ykkur!
OOOOOF fyndið þegar ég sá þetta
Lag dagsins: Með suð í eyrum með Sigur Rós
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.11.2008 | 01:43
Veskan min....HORFIN!!
Sagði að ég gæti keypt fötin til baka ef ég vildi....
*tíhí*
Ég er auðvitað löngu búin að eyða þessum peningum sem ég fékk og ekki séns að ég sé e-ð að standa í þessu rugli. Þannig ég stóð bara fast á mínum rétti að fá dótið mitt í hendurnar...alltof langt síðan þetta var og ekkert af þessu var á mína ábyrgð né mér að kenna.
...hálfu ári seinna er varla ætlast til þess að þú skilir peningunum sem þú fékkst í bætur fyrir að ÞAU týndu töskunni þinni bara því hún kom óvænt í ljós þá, heh.
Eftir að konan frá flugfélaginu fattaði síðan að Bandaríkin höfðu borgað mér en ekki Ísland þá varð hún bara allt önnur í síman og sagði strax "já þá máttu bara fá töskuna á morgun"
*shibbí*
Fékk monnís og öll fötin og dótið til baka
*whatever*
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)