Barcelona and dreaming of places that I love ;*

 
Ég var að horfa á "Atvinnumennina okkar" rétt í þessu með Eið Smára og að sjá Barcelona fær rykugu vængina mína til að vakna aðeins.
Ég hef verið svolítið mikið á flakki seinustu 2-3 árin og fór m.a. til Barcelona sumarið sem ég bjó í Evrópu. Stoppaði alltof stutt, eða bara í rúma viku og fannst ég ekki geta notið borgarinnar til fullnustu og fengið að sjá allt sem ég vildi sjá.
Þessi borg heillaði mig mjög mikið og mig langar einhverntima að búa þar í x tima og ætla allavegana pottþétt að heimsækja hana í bráð.
Þetta er einstaklega falleg borg, með alveg nóg uppá að bjóða og svo er hægt að ganga um alla borgina án þess að taka lest eða taxa. ...sem ég var að fýla mjög vel :)
 
*Lilja ætlar til heitra landa og USA á þessu ári áður en hún breytist í ísjaka og vængirnir brotna af henni....*  Sideways
 
barcelona
 
1185808626
 
Líf mitt seinustu 2 mánuðina hefur sannarlega breyst, og alls ekki til hins verra. Ég er eiginlega flutt inn til Gumma míns og er alveg yfir mig ástfangin. Læri á daginn og er svo í skólanum á kvöldin.
Fer svo auðvitað í trimmið til að halda mér í formi sem virkar svona svakalega vel ;)
 
Allir verða að nýta sér Trimmform Berglindar sem vilja ná hámarks árangri!!
 

 
Ég hef verið að leita mér að íbúð sem ég ætla að flytja inní á næstu mánuðum en í bili hefur ekkert komið sem mér lýst á og mér líður líka bara þónokkuð vel hérna hjá Gumma mínum.
Foreldrar hans eru alveg með eindæmum yndislegir og hver getur óskað sér betri kærasta en hann Gumma hotstuff InLove
 
n1199872054_337820_3389.jpg
 
Ég er búin að vera að horfa á þætti sem Paris hilton lét gera fyrir sig á MTV í veikindum mínum, svona samhliða lærdómnum of course, heh.
Og markmið þáttanna er að finna bestu vinkonu Paris Hilton's .
Ég alveg hló innra með mér og fékk kjánahroll þegar ég sá  auglýsinguna en af því ég þekki Paris smá  persónulega frá dvöl minni í LA þá veit ég að hún er bara að gera þetta í gríni og til að auka vinsældir sínar.
 
l_9c60c069f546f7e9d6a521cd29ae2c3f

Ég ákvað að kíkja á fyrsta þáttin, bara svona for fun, og að hugsa sér að fara í svona þátt til að verða "besta vinkona" einhverjar frægrar persónu??!!??
Fólkið sem kom var hverju furðulegra : hommi, kínverskur kynskiptingur, stelpa sem leit duldið út eins og Anna Nichole Smith, fyllibitta, forboðin djammari sem verður kolkreisí, hrein mey sem fer í kirkju 3svar í viku, rokkarinn, bikinígellan og skrítni stalkerinn..
Þetta var alltof fyndið til að missa af. Paris setti fyrir vinkonur sínar alls kyns þrautir og "challenges" til að finna út hver  myndi standa upp sem besta vinkonan. Og um leið sýndi hún áhorfendum hversu glamourus hennar líf er og öfundsvert.
Ég endaði með því að horfa til enda því ég alveg VARÐ að sjá hver myndi enda upp sem sigurvegari og hvort  hún myndi í raun verða vinkona hennar, haha
*það sem fólk gerir fyrir 5mín af frægð*
 
Hérna er t.d. fyrsti þátturinn
 
 
 
Lag dagsins: "Suicidal Dreams" með Silverchair
 

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband